18.1.2007 | 05:10
RÚV
Argarþrasið í Þinginu um RÚV er að mínu viti á villigötum. Umræðan á ekki að snúast um rekstrar form stofnunarinnar, heldur hvenær eigi að leggja báknið niður ; Núna eða strax aðrir möguleikar eru ekki í stöðunni. Að halda úti flokkssjónvarpi fyrir almannafé er eitt, en að nota til þess fjárhæðir sem dygðu til að brauðfæða Uganda er eitthvað sem menn þurfa að svara fyrir á efsta degi.
RÚV er í besta falli tímaskekkja, leyfar frá liðinni tíð og aðhlátursefni hvar sem alvarleg fjölmiðlun er rædd.
Ég skora á Þingmenn hvar í flokki sem þeir eru að leiða umræðuna um RÚV í þann farveg sem er hvorki Þingi né Þjóð til vansa.
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.